Sjálfbær samruni – listir, vísindi og miðlun þekkingar

Norræna húsið
Fimmtudaginn 28. október frá kl. 16.00–18.00, verður fyrsti viðburður af þremur í viðburðaröðinni Sjálfbær samruni – samtal lista og vísinda haldinn í Norræna húsinu. Stofnun Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun við Háskóla Íslands býður upp á viðburðaröðina í samstarfi við Norræna húsið og í henni mun fólk úr skapandi greinum og vísindasamfélaginu koma saman til að ræða hvernig listir og vísindi geta unnið saman að sjálfbærri framtíð. Viðburðaröðin er opin öllum án endurgjalds.
Fundarstjóri verður Ilmur Kristjánsdóttir, leikkona og nemi í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands.
Dagskrá:
Myrra Leifsdóttir - myndlistarkona og starfsmaður Stofnunar Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun, HÍ
Unnur Björnsdóttir – Listrænt ákall til náttúrunnar (LÁN), listkennslunemi, ungur umhverfissinni og myndlistarkona
Ida Karólína Harris – LÁN, ungur umhverfissinni
Skúli Skúlason - líffræðingur, prófessor við Háskólann á Hólum og sérfræðingur við Náttúruminjasafn Íslands
Atería - tónlist
Ólafur Páll Jónsson – heimspekingur og prófessor við Menntavísindasvið HÍ
Pallborðsumræður
Eftir viðburðinn verður boðið upp á veitingar frá Sónó auk þess sem opið verður á myndlistarsýninguna Time Matter Remains Trouble í Hvelfingu Norræna hússins fram eftir kvöldi og er tilvalið fyrir gesti að skoða hana en hún fjallar um samspil manns og náttúru. Boðið verður upp á leiðsögn um sýninguna kl. 18.30.
Markmiðið með viðburðaröðinni er að efla samtal milli lista og vísinda og stuðla að aukinni þekkingu og samstarfi um sjálfbæra þróun þvert á geira samfélagsins. Með viðburðaröðinni vilja Stofnun Sæmundar fróða og Norræna húsið vekja athygli almennings á mikilvægi sjálfbærrar þróunar, ekki síst nú í kringum loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna (COP26) sem hefst í Glasgow 31. október næstkomandi.