Skip to main content

Samkoma - alþjóðleg netsýning á dögum samkomubanns

Samkoma - alþjóðleg netsýning á dögum samkomubanns - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
16. apríl 2020 17:00 til 30. apríl 2020 17:00
Hvar 

samkoma.cargo.site

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Mismunandi aðferðir og miðlar koma saman á netlistasýningunni Samkoma sem samanstendur af verkum eftir sjö alþjóðlega listnema á myndlistarbraut Listaháskóla Íslands. Sýningin er samstarf meistaranema við Háskóla Íslands og myndlistardeildar Listaháskóla Íslands og stóð til að opna sýninguna í Veröld - húsi Vigdísar við Háskóla Íslands. Vegna heimsfaraldurs og samkomubanns var sýningin færð yfir á vefsvæðið samkoma.cargo.site og verður það formlega opnað kl. 17:00 fimmtudaginn 16. apríl.

Titillinn Samkoma var valinn nokkrum vikum áður en reglur um samkomubann voru kynntar á Íslandi og var hann meðal annars innblásinn af byggingunni Veröld, sem er alþjóðleg miðstöð tungumála og menningar og hýsir aðstöðu fyrir fyrirlestra- og ráðstefnuhald ásamt því að vera staður fyrir kennslu og rannsóknir í erlendum tungumálum. Tungumál tengja fólk og færir það nær hvert öðru og fjallar sýningin um samkomu ólíkra listamanna og verka þeirra.

Í aðdraganda sýningarinnar unnu listamennirnir út frá rótum og merkingu orðsins veröld - eða heimur einstaklingsins. Forn-enska orðið Weorold þýðir öld eða líf mannsins og tengist það hugtakinu lífheimur úr fyrirbærafræði sem Edmund Husserl (1859-1938) skrifaði um á þriðja áratug 20. aldarinnar. Lífheimurinn er einfaldlega hinn huglægi heimur einstaklingsins - sá heimur sem við lifum og hrærumst í frá degi til dags og eigum í stöðugu trúnaðarsambandi við. Það var mat Husserls að vísindin gerðu lítið úr þessum heimi og teldu hann á einhvern hátt ómerkilegri en heim vísindalegra sanninda. Husserl talaði fyrir nauðsyn þess að gera grein fyrir veruleikanum eins og hann birtist raunverulegum, lifandi, mennskum vitundarverum.

Á sýningunni Samkoma er ólíkum verkum eða heimum stillt saman og verður með því til nýtt abstrakt form eða nýr heimur þar sem fólk getur komið saman og upplifað veröldina á nýjan hátt.

Listamenn:
Auður Aðalsteinsdóttir (IS)
Brian Wyse (IRE)
Eugénie Touzé (FR)
Evija Pintane (LV)
Júlía Mogensen (IS)
Romain Causel (FR)
Solveig Pálsdóttir (IS)

Sýningastjórar:
Auður Inez Sellgren (IS/NO)
Estrid Thorvaldsdóttir (SE/IS)
Hrafnhildur Gissurardóttir (IS)
Jennifer Barrett (UK)

Kennari HÍ:
Æsa Sigurjónsdóttir

Kennari LHÍ:
Páll Haukur Björnsson

Mismunandi aðferðir og miðlar koma saman á netlistasýningunni Samkoma sem samanstendur af verkum eftir sjö alþjóðlega listnema á myndlistarbraut Listaháskóla Íslands. Sýningin er samstarf meistaranema við Háskóla Íslands og myndlistardeildar Listaháskóla Íslands

Samkoma - alþjóðleg netsýning á dögum samkomubanns