Rannsóknaháskóli verður til

Edda
Fyrirlestrasalur
Í tilefni af lokum verkefnisins Rannsóknaháskóli verður efnt til athafnar í fyrirlestrasal Eddu þriðjudaginn 28. apríl kl. 15.00–16.00.
Í verkefninu voru tekin viðtöl við 60 kennara og vísindamenn sem störfuðu við Háskóla Íslands á síðustu áratugum 20. aldar og fram yfir aldamótin. Í viðtölunum segja þeir frá rannsóknum sínum, umhverfi og áhrifavöldum og þróun fræðigreinar sinnar á þessum uppbyggingartíma. Á viðburðinum verður opnuð vefsíða með hlaðvörpum sem unnin voru úr viðtölunum.
Fundarstjóri: Hildur Kristmundsdóttir, forstöðumaður Raunvísindastofnunar Háskóla Íslands.
Dagskrá:
- Silja Bára Ómarsdóttur, rektor Háskóla Íslands: Ávarp
- Guðmundur Jónsson, fyrrverandi prófessor sagnfræði: Háskólamenn segja frá. Hvaða gildi hafa viðtölin?
- Leifur Reynisson, verkefnisstjóri hjá Miðstöð munnlegrar sögu: Að fanga söguna. Umfang og framkvæmd verkefnisins
- Jón Atli Benediktsson, fyrrverandi rektor Háskóla Íslands, opnar vef um verkefnið og viðtölin
- Sýning á stuttu myndbandi með klippum úr viðtölunum ásamt myndum af viðmælendum og úr háskólastarfinu
Að lokinni dagskrá verður boðið upp á veitingar í Ými, kaffihúsi Eddu.
Í tilefni af lokum verkefnisins Rannsóknaháskóli verður efnt til athafnar í fyrirlestrasal Eddu þriðjudaginn 28. apríl kl. 15.00–16.00.
