Raðgreining á SARS-CoV-2
Hvenær
5. maí 2021 13:00 til 13:40
Hvar
Verður streymt
Nánar
Aðgangur ókeypis
Páll Melsted, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild flytur fyrirlesturinn Raðgreining á SARS-CoV-2.
Fyrirlesturinn fer fram á íslensku og verður streymt
Ágrip
Íslensk erfðagreining hefur raðgreint nær öll covid sýni sem greinst hafa hér á landi. Í þessum fyrirlestri verður í stuttu máli farið yfir hvernig raðgreining á veirunni fer fram og hvað má læra af þessum niðurstöðum þegar þær eru settar í samhengi við önnur gögn. Með því að fylgjast með þeim ólíku gerðum veirunnar sem finnast er hægt að fylgjast með hvaðan þær koma til landsins og hvernig þær dreifast innanlands.
Páll Melsted, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild