Skip to main content

Pólland: Vetur

Pólland: Vetur - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
18. janúar 2025 10:30 til 11:30
Hvar 

Þjóðminjasafn

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Mariola Alicja Fiema, aðjunkt í pólskum fræðum við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands, flytur þriðja erindið í fyrirlestraröðinni Pólland: Vetur, sumar, vor og haust. Í erindinu verður fjallað um pólskan vetur.

Haldið í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins, laugardaginn 18. janúar kl. 10:30. Verið öll velkomin.

Mariola mun í erindi sínu fjalla um jólahald á pólskum heimilum og hvernig Pólverjar fagna áramótum en aðallega beina sjónum sínum að fjallahéruðunum í Suður-Póllandi. Þar er að finna fjölbreytta vetrarafþreyingu í töfrandi landslagi og eru þau áfangastaður fjölmargra ferðamanna. Mariola mun kynna þjóðhætti héraðanna, siði og menningu, söguleg kennileiti, s.s. námur og kastala. Svæðið er einnig þekkt fyrir matarmenningu sína. Ferðalöngum í Suður-Póllandi bíður ógleymanleg upplifun.

Fyrirlestrarnir eru fjórir og er hver tileinkaður einni árstíð:

Pólland: Sumar, 21. september 2024, kl. 10:30
Pólland: Haust, 23. nóvember 2024, kl. 10:30
Pólland: Vetur, 18. janúar 2025, kl. 10:30
Pólland: Vor, 15. mars 2025, kl. 10:30

Tilvalið tækifæri til að kynnast pólskri menningu. Frítt er inn á viðburðinn.

Fyrirlestraröðin er samstarfsverkefni Tungumálamiðstöðvar Háskóla Íslands og Þjóðminjasafnsins.

Mariola Alicja Fiema, aðjunkt í pólskum fræðum við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands.

Pólland: Vetur