Ómur frá Palestínu: Samtal við Nai Barghouti

Hvenær
18. apríl 2026 13:00 til 14:00
Hvar
Nánar
Aðgangur ókeypis
Nai Barghouti, palestínsk söngkona, tónskáld og flautuleikari ræðir stöðu listarinnar í herteknu landi, ýmsar menningarlegar stoðir palestínskrar þjóðarsjálfsmyndar, og hlutverk tónlistar í andspyrnu og varðveislu menningararfs.
Haldið á vegum Palestínuverkefnis Háskóla Íslands í Hörpu, laugardaginn 18. apríl kl. 13:00-14:00. Verið öll velkomin.
Nai hefur vakið heimsathygli fyrir tónlistarflutning sinn þar sem hún blandar saman arabískri tónlist, jazz og spuna.
Hér er um að ræða einstakt tækifæri til að heyra sýn listamannsins á sköpunarferlið í samhengi við stjórnmál og aðstæður dagsins í dag.
Nai Barghouti mun einnig halda tónleika í Hörpu 17. apríl næstkomandi. Sjá nánari upplýsingar hér.
Nai Barghouti
