Ofmetur launavísitala Hagstofunnar hækkun launa?

Oddi
Stofa 312
Farið verður yfir aðferðafræði paraðs úrtaks sem notuð er við útreikning launavístölunnar til að áætla hreinar launabreytingar.
Þá verður fjallað um tillögu dr. Zieschang um hvernig megi bæta útreikning á launavísitölunni með því að áætla hlut meiri þjálfunar og menntunar í hækkun launa.
Þróun launavísitölunnar er borin saman við þróun meðallauna á vinnustund miðað við magn vinnustunda í þjóðhagslíkani Seðlabankans og einnig miðað við magn vinnustunda í töflum Hagstofunnar um framleiðni.
Útskýrt er með einföldum dæmum hvernig launavísitalan gæti verið að ofmeta launabreytingu sem breyting meðallauna á vinnustund mældi rétt og einnig hvernig breyting meðallauna á vinnustund gæti of- eða vanmetið launabreytingu sem launavísitalan mældi rétt.
Farið verður yfir aðferðafræði paraðs úrtaks sem notuð er við útreikning launavístölu. Hún verður meðal annars borin saman við þróun meðallauna á vinnustund samkvæmt þjóðhagslíkani Seðlabankans og framleiðnitöflum Hagstofunnar.
