Nýsköpun í öldrunarþjónustu – Öldrunarheimili Akureyrar

Zoom
Viðburðurinn er á vegum Félagsráðgjafardeildar,
Félagsráðgjafafélags Íslands og RBF
Nýsköpunar- og þróunarverkefni um sveigjanlega dagþjálfun:
Ingunn Eir Eyjólfsdóttir félagsráðgjafi, fjallar um helstu niðurstöður
áfangamats eftir annað starfsár verkefnis með áherslu á þróun
framvindumats.
Heilabilunarráðgjafi – Hlutverk heilabilunarráðgjafa nú og í
framtíðinni?
Hulda Sveinsdóttir hjúkrunarfræðingur gerir grein fyrir því helsta í starfi heilabilunarráðgjafa á Íslandi nú og í framtíðinni ásamt nýsköpun og tækifærum fyrir félagsráðgjafa í starfi heilabilunarráðgjafa.
Skynúrvinnsla á Öldrunarheimilum Akureyrar (ÖA):
Elísa Arnars Ólafsdóttir iðjuþjálfi segir frá skynörvunarherbergi, markmiðum og notagildi skynúrvinnslu hjá notendum í þjónustu á ÖA. Gerð verður grein fyrir innleiðingarferli um markvissa notkun skynúrvinnslu, fræðslu og bæklingum.
Viðburðurinn fer fram á Zoom