Skip to main content

Nýnemadagar 2025

Nýnemadagar 2025 - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
1. september 2025 11:30 til 5. september 2025 14:00
Hvar 
Nánar 
Aðgangur ókeypis

Boðið verður upp á fjölbreytta og skemmtilega viðburði á Nýnemadögum Háskóla Íslands sem fara fram 1.-5. september. Nýnemar og aðrir stúdentar eru hvattir til að taka þátt í dagskránni en markmiðið er að kynna fyrir þeim litríkt háskólasamfélag með öflugum stuðningi og stuðla að myndun nýrra vináttubanda.

Stúdentaráð þjófstartar Nýnemadögum föstudaginn 29. ágúst með árlegu nýnemamóti sínu í fótbolta. Mótið verður haldið á grasfletinum framan við Aðalbyggingu og hefst kl. 13. Þar geta allir nemar tekið þátt með sínu nemendafélagi og er hvert lið skipað 7 keppendum, þar af þarf að vera einn nýnemi. Keppt verður 2x7 mín og eru glæsilegir vinningar í boði fyrir sigurvegarana sem og liðið í skemmtilegustu búningunum.

Hinir eiginlegu Nýnemadagar hefjast svo á kynningu á helstu þjónustueiningum Háskólans mánudaginn 1. september kl. 11.30-13.00 á Háskólatorgi. Þar geta nemendur spjallað við starfsfólk frá Nemendaráðgjöf, Alþjóðasviði, Nemendaskrá, Tungumálamiðstöð, Ritveri, Landsbókasafni og Smáuglunni – appi Háskóla Íslands Á staðnum eru líka fulltrúar frá Stúdentaráði, sjálfbærni- og umhverfismálum í HÍ, Háskólakórnum, Háskóladansinum, Félagi hinsegin stúdenta og Félagsstofnun stúdenta sem rekur Bóksölu stúdenta, Leikskóla stúdenta, Stúdentagarða, Stúdentakjallarann og fleira.

Enn fremur býður Stúdentaráð nýnemum í gönguferð um háskólasvæðið kl. 12.30 þann dag. Lagt er af stað frá upplýsingaborði fyrir nýnema á Háskólatorgi. Upplýsingaborðið verður starfrækt alla vikuna frá kl. 10-14 og þar geta nýnemar og aðrir fengið svör við hinum ýmsu spurningum sem varða námið, skólann, byggingar og stofuskipan, félagslífið, þjónustu og margt fleira.

Í vikunni rekur svo hver viðburðurinn annan þar sem tónlist og dans, kappleikir og stefnumót, skiptinám og vinnubrögð í námi koma meðal annars við sögu.

Þannig er hægt að kíkja á kósý hádegistónleika í Bóksölu stúdenta og heyra brot af því sem í boði verður á Októberfest á örtónleikum á Háskólatorgi í vikunni. Enn fremur mun Háskóladansinn stíga nokkur spor og kynna starfsemi sína á Háskólatorgi miðvikudaginn 3. september kl. 12.

Sama dag stendur Stúdentaráð fyrir Djúpu lauginnni, sinni eigin útgáfu af stefnumótaþættinum þekkta þar sem nemendafélög HÍ mætast. Djúpa laugin hefst í  Stúdentakjallaranum kl. 20.

Fimmtudaginn 4. september mætast fulltrúar HÍ og HR í æsilegum og mis-íþróttamannslegum kappleikjum á svokölluðum HÍ/HR degi og þar á HÍ titil að verja. Atið fer fram á malarstæðinu fyrir framan Októberfest-svæðið í Vatnsmýri og hefst kl. 15.

Nýnemadagar ná hápunkti sínum föstudaginn 5. september þegar Ólympíuleikar nýnemadaga fara fram. Þar etja kappi fulltrúar alla nemendafélaga við HÍ og sem fyrr er það ekki síst stuðningsfólkið sem spilar stærstu rulluna! Leikarnir fara fram á Októberfest svæðinu og hefjast kl. 15. 

Í vikunni verður Nemendaráðgjöf einnig með kynnningu á víðtækri þjónustu sinni við nemendur, þar á meðal náms- og starfsráðgjöf, sértækum úrræðum í námi og prófum, sálfræðiþjónustu, námstækni, Tengslatorgi og fleiru. Enn fremur verður Alþjóðasvið með örkynningu á tækifærum stúdenta til að taka hluta náms erlendis.

Á Nýnemadögum verður einnig boðið upp á hinn árlega og sívinsæla í spurningaleik fyrir nýnema á Uglu þar sem glæsilegir vinningar verða í boði.

Nýnemar eru einnig hvattir til að fylgjast með Instagram-reikningi Háskólans umrædda viku þar sem kynnt er ýmis þjónusta, stuðningur og félagslíf sem stendur nemendum til boða.

Nánari upplýsingar um nýnemadaga má finna á vefsíðu Nýnemadaga.

Boðið verður upp á fjölbreytta og skemmtilega viðburði á Nýnemadögum Háskóla Íslands sem fara fram 1.-5. september. Nýnemar og aðrir stúdentar eru hvattir til að taka þátt í dagskránni en markmiðið er að kynna fyrir þeim litríkt háskólasamfélag með öflugum stuðningi og stuðla að myndun nýrra vináttubanda.

Nýnemadagar 2025