Náttúrutengsl sem leið til að uppgötva sjálfsmynd sína – samanburðarsjónarmið

Veröld - Hús Vigdísar
Heimasvæði tungumála
Katarzyna Rytlewska, fræðimaður við Casimir the Great University í Póllandi, flytur erindi á vegum Íslensku- og menningardeildar Háskóla Íslands sem nefnist Connecting with nature as a way of discovering one’s identity – a comparative perspective.
Haldið á 2. hæðí Veröld (Heimasvæði tungumálanna), miðvikudaginn 29. apríl, 15.00-17.00. Verið öll velkomin.
Um fyrirlesturinn
Í fyrirlestri sínum ber dr. Rytlewska saman Sveppatínarann eftir Viktoriu Hanišová og Empusium: Hryllingssögu úr heilsulind eftir Olgu Tokarczuk. Hún leggur áherslu á hvernig aðalpersónurnar í báðum bókunum sameinast í þörfinni fyrir að endurbyggja sína eigin sjálfsmynd. Hún varpar einnig fram spurningum um hvort snerting við náttúruna geti gegnt mikilvægu hlutverki í þessu ferli, í samræmi við hugmynd Arne Naess um djúpvistfræði og kenningu Stacy Alaimo um yfirlíkamleika, og hvort umhverfisnálgun sem ögri mannmiðlægri hugsun, sé fær um að afhjúpa flæði og gagnkvæm samskipti milli manna og annarra vera.
Um fyrirlesarann
Katarzyna Rytlewska er doktor í hugvísindum og lektor í almennri bókmenntafræði og samanburðarbókmenntafræði við Kasimírháskólann í Bydgoszcz (Póllandi). Rannsóknir hennar snúast um flókið samspil nálægðar og einangrunar, rými geðsjúkrahússins og vistfræðilega gagnrýni; hún sérhæfir sig í verkum Olgu Tokarczuk. Hún er höfundur bókarinnar Microcosm of a Psychiatric Hospital: From the Perspective of Modernist and Postmodernist Theory and Practice (2022), sem byggir á doktorsritgerð hennar, og greina sem birtar hafa verið í greinasöfnum og tímaritum. Hún er meðritstjóri greinasafns um Zbigniew Herbert, sem ber titilinn Herbert enn „uppgötvaður“ og enn „túlkaður“ (2024) sem kom út í tímaritinu Litteraria Copernicana.
Katarzyna Rytlewska
