NATÓ Þá og nú // Heimildamyndin 1949 og pallborðsumræður

Bíó Paradís
Ný heimildarmynd, 1949, verður frumsýnd á einstökum bíóviðburði í Bíó Paradís laugardaginn 11. apríl kl. 15-16. Heimildarmyndin fjallar um óeirðirnar á Austurvelli 30. mars 1949 þegar tillaga um stofnaðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu var samþykkt á Alþingi. Myndin er lokaverkefni Guðmundar Atla Hlynssonar í meistaranámi í menningarmiðlun við HÍ. Frítt er inn á viðburðinn.
Heimildarmyndin byggir á stórkostlegu myndefni frá 30. mars 1949 eftir frumkvöðla í íslenskri kvikmyndagerð sem varðveitt er á Kvikmyndasafni Íslands. Myndin er jafnframt samstarfsverkefni með Kvikmyndasafninu.
Guðmundur Atli Hlynsson, leikstjóri 1949, verður með stutta kynningu fyrir kvikmyndina.
Pallborðsumræður
Eftir frumsýninguna verða pallborðsumræður um aðdraganda og eftirmál aðildar Íslands að Atlantshafsbandalaginu, áhrif þess á íslenskt samfélag og stöðu varnarbandalagsins á breytingatímum.
Þátttakendur í pallborðinu eru með helstu sérfræðingum þjóðarinnar í sögu þessari og þýðingu Atlantshafsbandalagsins. Það eru Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra og sérfræðingur í öryggis- og utanríkismálum, Rósa Magnúsdóttir, prófesor í sagnfræði, og Stefán Pálsson sagnfræðingur.
Guðmundur Atli stýrir pallborðinu.
Umdeild atburðarás
Lengi hefur verið deilt um hvað skeði á Austurvelli 30. mars 1949 og hverjir beri ábyrgð á átökum sem urðu. Í heimildarmyndinni 1949 er ekki tekin afstaða til þess. Í staðinn er áhorfendum gefið tækifæri til að upplifa hvernig það hefði verið að vera á Austurvelli á þessum örlagaríka degi.
Kvikmyndin er ekki aðeins sjónræn en smíðuð hefur verið hljóðmynd með óeirðaefninu. Þá hljómar tónlist eftir Magnús Jóhann í myndinni. Samankomið skapa mynd, hljóð og tónlist sannkallaða kvikmyndaupplifun.