Mótun Evrópu frá jaðrinum
![Mótun Evrópu frá jaðrinum - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_KRI_byggingar_160804_03.jpg?itok=EBUzSExH)
Þjóðminjasafn - fyrirlestrasalur
Ráðstefnan fjallar með gagnrýnum hætti um Evrópu með því að gera jaðar hennar miðlægan.
Viðburðurinn er haldinn í tilefni af útgáfu bókarinnar Creating Europe from the Margins: Mobilities and Racism in Postcolonial Europe (Routledge, ágúst 2023) í ritstjórn Kristínar Loftsdóttur, Brigitte Hipfl og Sandra Ponzanesi, en þar koma nokkrir höfundanna saman og kynna kaflana sína. Þeir skoða meðal annars spennu og tengsl á milli skiptingarinnar í hnattrænt norður og suður, sem og skiptingu innan Evrópu sjálfrar. Lögð er áhersla á að skoða Evrópu frá þverfræðilegu sjónarhorni, sem tekur jafnframt mið af kynþáttahyggju og nýlendusögu Evrópu.
Bókin er einn lykilafrakstur verkefnisins CERM (Creating Europe though Racialized Mobilities) sem er styrkt af Rannsóknarsjóði Íslands. Verkefninu er stýrt af Kristínu Loftsdóttur. Home - CERM (hi.is)
Hlekkur á bókina: https://www.routledge.com/Creating-Europe-from-the-Margins-Mobilities-and-Racism-in-Postcolonial/Loftsdottir-Hipfl-Ponzanesi/p/book/9781032209791
Ráðstefnan fer fram á ensku.
Kápa bókarinnar Creating Europe from the Margins: Mobilities and Racism in Postcolonial Europe
![Mótun Evrópu frá jaðrinum](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/4aa3d.jpg?itok=1P_uCX2p)