Móttaka nýnema í grunnnámi á Menntavísindasviði
![Móttaka nýnema í grunnnámi á Menntavísindasviði - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_KRI_%20askja_byggingar_200512_004.jpg?itok=2L7OiQQi)
Hvenær
21. ágúst 2023 8:50 til 12:25
Hvar
Stakkahlíð / Háteigsvegur
Skriða
Nánar
Aðgangur ókeypis
Menntavísindasvið HÍ (MVS) býður öllum nýnemum í grunnnámi sviðsins til móttöku, fræðslu og skemmtunar mánudaginn 21. ágúst.
Dagskrá móttökunnar hefst með sameiginlegri dagskrá í Skriðu, Stakkahlíð kl.8.50. Kennsla hefst svo samkvæmt stundaskrá kl.12.30 að lokinni móttöku nýnema.
Nánari dagskrá:
21. ágúst - Mánudagur
08.50 - 09.45 - Móttaka í Skriðu, gengið inn um aðalinngang við Háteigsveg
- Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti MVS
- Dagbjört Ósk Jóhannsdóttir, forseti sviðsráðs
- Fulltrúar nemendafélaga MVS, Tuma, Kennó og Vatnið
- Kynning á þjónustu MVS
- Ása Helga Proppé Ragnarsdóttir fer yfir síðasta dagskrárlið
09.50 - 10.10 - Kynning á námi eftir deildum
Boðið verður upp á hressingu eftir kynningu á námi fyrir utan stofur.
10.30 - 12.20 - Nemendur námsbrauta hittast og kynnast
12.30 - Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá