Móttaka nýnema í alþjóðlegu námi í menntunarfræði
![Móttaka nýnema í alþjóðlegu námi í menntunarfræði - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/fanamynd_2_nota.jpg?itok=XHRvpxjA)
Stakkahlíð / Háteigsvegur
K-207
Þann 7. september 2023 verður haldin móttaka nýnema í alþjóðlegu námi í menntunarfræði.
Nýnemar eru boðnir velkomnir í Stakkahlíð þar sem þeir fá nánari upplýsingar um alþjóðlegt nám í menntunarfræði, ganga saman um skólabygginguna og kynnast hvert öðru.
Dagskrá:
10.30 - 11.15 Nemendafulltrúar kynna viðburði á haustmisseri
11.15 - 12.00 Kynning á Háskóla Íslands og rölt um skólabygginguna í Stakkahlíð
12.00 - 13.00 Hádegisverður
13.00 - 14.30 Kynning á námskeiðum
14.30 -15.00 Spurningar
Dagskrá í fullri lengd má sjá hér
Markmiðið með móttöku nýnema er að bjóða nemendur í alþjóðlegu námi í menntunarfræði velkomna, kynna þá þjónustu sem er í boði innan Háskólans og aðstoða nemendur við að aðlagast nýju umhverfi og menningu.
Kynningin er einkum ætluð nemendum í grunnnámi í alþjóðlegu námi í menntunarfræði. Skiptinemum á Menntavísindasviði er einnig velkomið að taka þátt frá kl. 10:30 –13.00.
Móttaka nýnema í alþjóðlegu námi í menntunarfræði
![Móttaka nýnema í alþjóðlegu námi í menntunarfræði](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/r9jpx.jpg?itok=irYxwfJE)