Miðbiksmat í umhverfis- og auðlindafræði - Kevin Joseph Dillman

Streymi:https://eu01web.zoom.us/j/69644438964.
Titill verkefnis: Áhrif rafvæðingar á samgöngugeirann og áhrif hennar á sjálfbærar samgöngur (Impact of electrification of the urban mobility sector and its role within Sustainable Urban Mobility)
Doktorsefni: Kevin Joseph Dillman
Doktorsnefnd: Dr. Brynhildur Davíðsdóttir, prófessor í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands
Dr. Jukka Heinonen, prófessor við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands
Dr. Reza Fazeli, vísindamaður við Australian National University
Ágrip
Rafvæðing ökutækja getur dregið úr losun gróðurhúsalofttegunda í löndum með miðlungs til lágan kolefnisstyrk rafmagnskerfa, þó að í borgarskala ætti að taka tillit til óbeinnar losunar í tengslum við framleiðslu ökutækja þegar hugað er að afkolunaráætlunum. Að auka magn af rafknúnum ökutækjum hefur auk þess áhrif á rafkerfið og gæti þurft að bæta í innviði rafkerfa til að anna eftirspurn raforku.
Þetta veitir innsýn í víðtækari áhrif rafvæðingar og áhrif innan stærri myndar sjálfbærs samgöngukerfis í þéttbýli; á meðan ökutæki aðstoða við kolefnisvæðingu flutningageirans eru fleiri umhverfislegir og félagslegir þættir sem hafa þarf í huga. Þessi vinna kannar þar að auki „sjálfbæra neyslu ganginn“ til að skilja félagslegt lágmark og vistfræðilegt hámark sem spila mikilvægt hlutverk fyrir samgöngugeirann, til að veita dýpri innsýn í það hlutverk sem rafvæðing getur gegnt í átt að sjálfbæru samgöngukerfi.
Niðurstöðurnar hingað til hafa sýnt að innan Reykjavíkur munu rafmagnsbílar ná nægum framförum í átt að losun koltvísýrings vegna beinnar losunar frá samgöngugeiranum, þó mun samþætt aðferð stuðla að meiri sjálfbærni og bjóða upp á meiri möguleika á kolefnisvæðingu þegar litið er til óbeinnar losunar.
Kevin Joseph Dillman
