Miðbiksmat í jarðfræði - Nína Aradóttir

Streymi: https://eu01web.zoom.us/j/68140996665
Titill: Setgerð og bygging straumlínulandforma á Norðausturlandi: ummerki fornra ísstrauma (Morphology and internal architecture of subglacial bedforms in NE-Iceland: Evidence of palaeo-ice streaming)
Doktorsefni: Nína Aradóttir
Doktorsnefnd: Ívar Örn Benediktsson, sérfræðingur og aðjúnkt við Jarðvísindastofnun og Jarðvísindadeild Háskóla Íslands
Ólafur Ingólfsson, prófessor við Jarðvísindadeild Háskóla Íslands
Skafti Brynjólfsson, sviðsstjóri jarðfræði hjá Náttúrufræðistofnun Íslands
Anders Schomacker, prófessor við Heimskautaháskólann í Tromsö, Noregi
Ágrip
Rannsóknir á landmótun ísstrauma eru mikilvægar til að auka skilning okkar á umfangi og virkni þeirra og þeim ferlum við botn sem stuðla að auknum skriðhraða og myndun landforma. Tilgátur hafa verið settar fram um ísstrauma í hinum íslenska meginjökli á síðasta jökulskeiði en takmarkaðar rannsóknir hafa verið gerðar á útbreiðslu þeirra og hegðun.
Markmið þessa verkefnis er að rannsaka ummerki eftir forna ísstrauma á Norðausturlandi og þar með auka skilning okkar á landmótun, útbreiðslu og hegðun þeirra í tíma og rúmi, auk þekkingar á þeim ferlum sem stýra og stuðla að auknum skriðhraða. Þetta verður gert með því að kortleggja og rannsaka jökulræn landform og setlög frá Jökuldalsheiði norður til Vopnafjarðar, Bakkaflóa og Þistilfjarðar, með margvíslegum jarð- og jarðeðlisfræðilegum aðferðum. Aðaláherslan er lögð á straumlínulaga landform, sem eru flokkuð sem jökulöldur og risakembur. Svæði með greinilegum ummerkjum eftir ísstrauma hafa verið skilgreind og útbreiðsla og lega landformanna benda til nokkurra ísstrauma sem hafa verið virkir á mismunandi tíma. Mismunandi lögun landformanna milli svæða gefur til kynna sveiflur í þróun ísstraumanna í tíma og rúmi og breytileika í undirlagi þeirra.
Niðurstöður verkefnisins munu auka skilning okkar á virkni fornra ísstrauma á Íslandi og þróun íslenska ísaldarjökulsins á síðjökultíma. Einnig munu niðurstöðurnar nýtast við að skorða líkön fyrir myndum landforma undir hraðskreiðum jöklum og viðbrögðum þeirra við hlýnandi loftslagi og hækkandi sjávarstöðu.
Nína Aradóttir
