Menning og ferðaþjónusta á Norðurlandi

Akureyri, Skipagötu 14
Rannsóknarsetrið í safnafræði, Rannsóknamiðstöð ferðamála (RMF), Félag íslenskra safna og safnafólks (FÍSOS), Síldarminjasafnið á Siglufirði og Samtök Ferðaþjónustunnar (SAF) standa fyrir viðburðinum, Menning og ferðaþjónusta á Norðurlandi – opin vinnustofa á Akureyri, sem haldinn verður fimmtudaginn 7. maí kl. 10.00 - 15.00 í Lionssalnum, Skipagötu 14.
Markmiðið er að viðburðurinn verði bæði skemmtilegur og gagnlegur en lagt er upp með að styðja og styrkja samstarf og samtal milli menningar- og ferðaþjónustuaðila á Norðurlandi og stuðla að sjálfbærri þróun í ferðaþjónustu. Því viljum við leiða saman alla aðila á einn stað og hefja samtalið. Því aukin samvinna er ekki síst mikilvæg í ljósi þess að heimsóknir á söfn eru þriðja vinsælasta afþreying ferðamanna á Íslandi, á eftir náttúrulaugum og heilsulindum.
- 9:30 Húsið opnar.
- 10:00 Opnun. Einn af skipuleggjendum: Guðrún Dröfn Whitehead kynnir niðurstöður könnunar
- 10:15-11.15. Pallborðsumræður 1: Möguleikar í samstarfi innan svæða. Þátttakendur halda 5 mín kynningu hver, í kjölfarið eru umræður og spurningar teknar úr sal. Pallborðsstjóri: Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka Ferðaþjónustunnar. Þátttakendur: • Haraldur Þór, forstöðumaður Minjasafnsins á Akureyri. • Helga Nína Helgadóttir, Markaðsstjóri SBA Norðurleiðir. Elías Bj. Gíslason, sérfræðingur á sviði þróunar og þjónustu hjá Ferðamálastofu.
- 11:15-12.15. Pallborðsumræður 2: Áskoranir og úrræði. Þátttakendur halda 5 mín kynningu hver, í kjölfarið eru umræður og spurningar teknar úr sal. Pallborðsstjóri: Steinunn María Sveinsdóttir, safnstjóri Flugsafns Íslands. Þátttakendur: • Aníta Elefsen, safnstjóri Síldarminjasafns Íslands. • Elín Aradóttir, markaðs- og áfangastaðaþróun hjá Markaðsstofa Norðurlands. • Kristín Sóley Björnsdóttir, viðburðastjóri hjá Menningarfélagi Akureyrar
- 12:15-13.00 Hádegishlé
- 13:00-14.00. Menningarstofnanir og markaðssetning. Hagnýtur fyrirlestur – vinnustofa. Datera.
- 14:00-15.00. Hvernig eflum við samtalið, “speed-dating” viðburður. Dagrún Ósk Jónsdóttir, þjóðfræðingur, Háskóli Íslands.
Safnafræðin kynnir viðburðinn Menning og ferðaþjónusta á Norðurlandi – opin vinnustofa á Akureyri. Markmiðið er að styðja og styrkja samstarf og samtal milli menningar- og ferðaþjónustuaðila á Norðurlandi og stuðla að sjálfbærri þróun í ferðaþjónustu.
