Meistarakynningar
Hvenær
2. október 2018 12:30 til 16:15
Hvar
Stakkahlíð / Háteigsvegur
Klettur
Nánar
Aðgangur ókeypis
Þriðjudaginn 2. október verður málþing útskriftarnema við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Um 35 meistaranemar flytja stuttar kynningar á lokaverkefnum sínum og eru viðfangsefnin af ýmsum toga.
Dagskrá hefst kl. 12.30 með ávarpi forseta Menntavísindasviðs og eftir kaffiveitingar taka við kynningar í málstofum.
Ávarp og kaffi verða á 2. hæð í Kletti í rými á milli kennslustofa en málstofur verða í stofum K205, K206, K207 og K208.
Dagskrá
12.30 – 12.50 Ávarp – Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs
Kaffiveitingar
12.50 – 13.50 Málstofur
13.50 – 14.00 Hlé
14.00 – 15.00 Málstofur
15.00 – 15.10 Hlé
15.10 – 16.10 Málstofur
Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.