Skip to main content

Meistarafyrirlestur í tölvunarfræði - Helgi Hafnar Gestsson

Meistarafyrirlestur í tölvunarfræði - Helgi Hafnar Gestsson - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
30. september 2020 16:00 til 17:00
Hvar 

VR-II

Stofa 257

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Meistaranemi: Helgi Hafnar Gestsson

Heiti verkefnis: Hljóðtíðnimögnun með hugbúnaðarstýrðri púlsvíddarmótun 

___________________________________________

Deild: Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild 

Leiðbeinendur: Rúnar Unnþórsson, prófessor við  Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild og Kristinn Andersen, prófessor við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild

Prófdómari: Helgi Þorbergsson, dósent við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild

Ágrip

Markmið verkefnisins var að fá svör við þremur rannsóknarspurningum. Í fyrsta lagi athuga hvort hægt sé að nota hátíðni spennubreyti með „Z sniði“ sem lághleypisíu fyrir púlsvíddarmótuð (PWM) merki í stað tveggja hátíðni spóla til að ná betri orkunýtingu frá aflrásum sem senda púlsvíddarmótuð merki út í álag í hlutfalli við raforkuna sem aflrásin tekur á móti. Í öðru lagi athuga hvort betra sé að nota samflétt púlsvíddarmótuð merki með ákveðnu sniði í stað hefðbundinna púlsvíddarmótaðra merkja m.t.t. stafrænnar hljóðtíðnimögnunar, með forrituðum ígreyptum tölvum, þegar markmiðið er að fá betri hljómgæði og minni truflanir. Í þriðja lagi athuga hvort hátíðni spennubreytir með „Z sniðinu“ sé betri kostur en hefðbundið tveggja spólna fyrirkomulag þegar markmiðið er að lágmarkga truflanir og bjögun í stafrænum hljóðtíðnimögnurum sem styðjast við púlsvíddarmótun.