Meistarafyrirlestur í byggingarverkfræði - Bjarki Már Gunnarsson

VR-II
Stofa 157
Meistaranemi: Bjarki Már Gunnarsson
Heiti verkefnis: Burðarþolsgreining á járnbentum steyptum bita í brotprófi með stafrænni myndgreiningartækni
___________________________________________
Deild: Umhverfis- og byggingarverkfræðideild
Leiðbeinendur: Bjarni Bessason og Haukur J. Eiríksson
Prófdómari: Torfi G. Sigurðsson, verkfræðingur hjá Mannvit
Ágrip
Stafræn myndgreiningartækni hefur sannað gildi sitt og er mikið notað í verkfræðilegum rannsóknum í dag. Tæknin er tiltölulega einföld í notkun og framfarir á sviði myndgreiningarinnar eru hraðar. Helsta markmið verkefnisins er að nýta möguleika og nákvæmni stafrænnar myndgreiningar til að fylgjast með einfalt undirstuddum steyptum bita í brotprófi. Niðurstöður myndgreiningarinnar eru bornar saman við þær líkingar sem eru notaðar í burðarþolshönnun á steyptum bitum á Íslandi í dag. Þetta verkefni er unnið sem hluti af doktorsverkefni Hauks J. Eiríkssonar við Umhverfis og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands. Framkvæmd tilraunarinnar tókst vel og hægt er að fylgjast náið með öllum hreyfingum á yfirborði bitans, nákvæmni mælinganna er upp á brot úr millimetra þökk sé stafrænni myndgreiningu.
Niðurstöður tilraunarinnar passa vel við aðferðir sem eru notaðar til að reikna vægisþol skerbrotsþol og sprunguvíddir í hönnun á steyptum bitum í dag. Ekki tókst að samrýma niðurstöður tilraunarinnar við svokallaða grindarlíkansaðferðina (e. strut and tie method) né strengjasnúningsaðferðina (e. chord rotation) eins þeim er lýst í Evrópustöðlum, ástæðan er sú að bitinn uppfyllir ekki kröfu um lágmarksskerjárn fyrir þessar tvær aðferðir.