Með fróðleik í fararnesti: Fuglarnir fljúga heim – Fuglaskoðun í Grafarvogi

Hvenær
17. maí 2025 11:00 til 13:00
Hvar
Grafarvogskirkja
Nánar
Mæting kl. 11 við Grafarvogskirkju
Þegar farfuglarnir flykkjast heim til Íslands er vorið komið og sumarið á næsta leiti. Sölvi Rúnar Vignisson, fuglafræðingur frá Háskóla Íslands mun leiða ferð í nágrenni fjörunnar í Grafarvogi þar sem fuglarnir safnast saman.
Gott er að koma með sína eigin sjónauka og gjarnan fuglabækur og auðvitað að klæða sig eftir veðri.
Hluti af samstarfsverkefni Ferðafélags Íslands og Háskóla Íslands: Með fróðleik í fararnesti.
Öll velkomin, þátttaka ókeypis. Ekkert að panta, bara mæta!
Mæting: Kl. 11 við Grafarvogskirkju.
