Skip to main content

Málþing um samtímarannsóknir í kvikmyndafræði

Málþing um samtímarannsóknir í kvikmyndafræði - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
11. desember 2020 13:00 til 17:00
Hvar 
Nánar 
Aðgangur ókeypis

Árleg ráðstefna kvikmyndafræði við Háskóla Íslands, Samtímarannsóknir í kvikmyndafræði, verður haldin í þriðja sinn 11. desember næstkomandi. Hefjast leikar kl. 13 og málþingið stendur til kl. 17. Líkt og fyrri ár kennir ýmissa grasa í efnisvali en af ástæðum sem ekki þarf að ræða frekar verður ráðstefnan að öðru leyti býsna ólík forverum sínum. Kvikmyndafræðin hefur brugðið á það ráð að færa viðburðinn alfarið á netið og streyma vídeórerindum. 

Hægt verður að nálgast upplýsingar um staðarhald og finna krækjur á Zoom viðburðinn á Facebook-síðu kvikmyndafræðinnar. Einnig er hægt að skunda beint á þing með því að smella hér.

Dagskrá:

  • 13:00 Gunnar Tómas Kristófersson – „Íslenskar költmyndir“
  • 13:30 Jóna Gréta Hilmarsdóttir – „Kynbundin orðræðugreining á viðtökum íslenskra kvikmynda“
  • 14:00 Björn Þór Vilhjálmsson – „Þurfum við að cancela Lars von Trier?“
  • [Hlé]
  • 15:00 Nikkita Hamar Patterson – „Gunning for Film Studies: Trigger Warnings, Extreme Cinema and the Classroom“
  • 15:30 Nökkvi Jarl Bjarnason – „Framing Final Fantasy: A Preliminary Study of the Relationship Between Final Fantasy and Cinema“
  • 16:00 Luca Panaro – „Ludos in Mythos: God of War and the Subversion of Snorri“
  • 16:30 Q&A