Málþing um Eignarétt Í boði Lagastofnunar og Fons Juris

Aðalbygging
Hátíðasalur
Út er komin bókin Eignaréttur I eftir Þorgeir Örlygsson, Karl Axelsson og Víði Smára Petersen. Af því tilefni boða Lagastofnun Háskóla Íslands og Fons Juris til stutts málþings um eignarétt. Málþingið verður haldið í Hátíðasal Háskóla Íslands 6. febrúar kl. 16.30. Í upphafi málþingsins mun Lára Herborg Ólafsdóttir, fræðilegur ritstjóri Fons Juris, kynna efni bókarinnar. Að því loknu verða eftirfarandi erindi flutt:
Karl Axelsson, hæstaréttardómari og dósent:„Fáeinir fróðleiksmolar um stjórnarskrárvernd eignarréttar“
Valgerður Sólnes, lektor:„Sönnunarfærsla í eignarréttarmálum“
Víðir Smári Petersen, lögmaður og aðjunkt:„Sérstaða vatnsréttinda með hliðsjón af nýlegri dómaframkvæmd“
Fundarstjóri verður Ása Ólafsdóttir, prófessor og varadeildarforseti lagadeildar Háskóla Íslands.
Að loknu málþinginu verður haldið útgáfuhóf þar sem boðið verður upp á léttar veitingar.
Eignaréttur I er fyrsta bindið í fyrirhugaðri þriggja binda ritröð höfunda um íslenskan eignarétt, en hingað til hefur tilfinnanlega skort heildstætt yfirlit um íslenskan eignarétt. Þetta fyrsta bindi er hugsað sem inngangsfræði eignaréttarins, eins konar almennur hluti, þar sem teknar eru til umfjöllunar reglur sem eru sameiginlegar flestum eignaréttindum og varða grundvallarþætti í íslenskri eignarréttarskipan. Í þessu fyrsta bindi er fjallað um ýmsar réttarreglur sem oft reynir á fyrir dómstólum, eins og til dæmis andlag eignarréttar, eignaraðild, eignarform, forkaupsrétt og önnur óbein eignarréttindi, réttarreglur um sérstaka sameign, stofnunarhætti eignarréttinda og nábýlisrétt.
Útgáfa ritsins var styrkt af Lagastofnun Háskóla Íslands og útgefandi er Fons Juris ehf.
Málþing um Eignarétt Í boði Lagastofnunar og Fons Juris
