Skip to main content

Málstofa um gervigreind og mannréttindi

Málstofa um gervigreind og mannréttindi - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
7. nóvember 2023 12:00 til 13:15
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Málstofan er á vegum Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands.

Frummælendur eru Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Róbert R. Spanó, prófessor við Lagadeild HÍ, lögmaður hjá Gibson Dunn og fyrrverandi forseti Mannréttindadómstóls Evrópu.

Málstofustjóri er Brynhildur G. Flóvenz dósent og formaður stjórnar Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands.

Katrín mun fjalla um tillögur að breytingum á mannréttindakafla stjórnarskrárinnar sem nýlega voru kynntar. Róbert mun síðan fjalla sérstaklega um þá þróun á alþjóðavettvangi, einkum innan Evrópusambandsins, er snýr að reglusetningu á sviði gervigreindar sem hefur það að markmiði að vernda mannréttindi.