Málstofa Lífvísindaseturs - Ísland sem vagga fyrir sprota í meðferðartækni; saga EpiEndo

Læknagarður
Stofa 201
Málstofa Lífvísindaseturs fimmtudaginn 28. október kl. 12:00 í Læknagarði stofu 201 og í beinu streymi
Fyrirlesari: Friðrik Rúnar Garðarsson, MD. Fonder and Chief Innovation Officer, EpiEndo Pharmaceuticals.
Titill: Iceland as an incubator for startups in the health and biotech industry and the important role of BMC in the future growth of that industry in Iceland - (Ísland sem vagga fyrir sprota í heilsu og meðferðartækni og mikilvægi Lífvísindaseturs í komandi vexti þess iðnaðar hérlendis)
Zoom veftengill: https://eu01web.zoom.us/j/69587333325
Ágrip: EpiEndo var stofnað í janúar 2014 og steig sín fyrstu skref í rannsóklnum og þróun innan Lífvísindaseturs Háskóla Íslands (BMC). Allt frá stofnun og til þess að félagið gat tryggt sér einkaleyfi síðla árs 2016, stutt bæði niðurstöðum úr frumulíkönum og dýratilraunum, voru allar rannsóknir þess gerðar á Íslandi og að verulegu leyti undir regnhlíf BMC.
Með hliðsjón af tíðarandanum er ljóst að líftækni iðnaðurinn mun vaxa hér á landi á komandi árum og því mikilvægt að þeir sprotar sem hér spretta upp koðni ekki vegna kringumstæðna eða þurfi að hafa starfsemi sína erlendis heldur hafi aðstæður til að vaxa innanlands og stunda vöruþróun byggða á framsæknum rannsóknum í hæsta gæðaflokki.
Framgangur EpiEndo talar sínu máli um gæði rannsókna og aðlögunarhæfni BMC en ef höndla á komandi vöxt iðnaðarins þarf ýmsan stuðning til að iðnaður nái sér á visst strik. Þrátt fyrir mikla burði mun BMC einnig þurfa að taka breytingum tíðarandans opnum örmum og vera leiðandi í frekari innri samtengingu rannsóknaumhverfisins hér á landi, skapa greiðan aðgang að sérhæfðri aðstöðu, vera vettvangur samnýtingar hennar og annast umsjón hennar. Byggja þarf á uppsafnaðri reynslu og forsvarsfólk BMC á hverjum tíma þarf að hafa innsýn í eðli forsendna vaxtar og viðgangs sprotafyritækja í þessum iðnaði.
Á næstu fimm árum verður grunnurinn lagður að farsældarstiginu að 15 árum liðum. Verði vel að grunninum staðið mun Ísland ekki vera neinn eftirbátur fremstu þjóða í þessum iðanaði við upphaf fjórða áratugar þessarar spennandi nýjungaaldar.
EpiEndo was founded in 2014 and took its first steps in research and development within BMC. From inception and until the company filed its patent in late year 2016, all of its research was conducted in Iceland and most of it under the BMC umbrella.
Given the spirit of the times, it is clear that the biotech industry will grow rapidly in Iceland in the coming years. It is therefore important that those start-ups that emerge here do not wither due to circumstances or be forced to operate abroad but have the conditions to mature domestically and pursue product development based on progressive research of the highest quality.
Fyrirlesturinn verður á ensku.
Allir velkomnir
Friðrik Rúnar Garðarsson, MD. Fonder and Chief Innovation Officer, EpiEndo Pharmaceuticals.
