Lýðræði á tímum stafrænnar tækni

Á vefnum og í Hörpu
Alþjóðaráðstefna um lýðræði og stafræna tækni – Democracy in a Digital Future – verður haldin dagana 25.–26. mars 2021. Forsætisráðuneytið stendur að ráðstefnunni í samvinnu við Rannsóknasetrið EDDU við Háskóla Íslands, Alþingi og fjölmiðlanefnd. Ráðstefnan, sem fer að mestum hluta fram á ensku, er öllum opin. Ráðstefnan fer fram rafrænt og í Hörpu eftir því sem aðstæður leyfa.
Á undanförnum árum hafa vaknað spurningar um áhrif nýjunga á sviði stafrænnar tækni á lýðræði, jafnrétti og einstaklingsbundin réttindi. Á ráðstefnunni koma saman erlendir og innlendir fræðimenn á sviði stjórnmálafræði, heimspeki, lögfræði og tæknifræða, stjórnmálamenn og sérfræðingar til að fjalla um þær áskoranir sem lýðræðið stendur frammi fyrir á tuttugustu og fyrstu öldinni. Leitast verður við að svara spurningum um hlutverk stjórnvalda við að tryggja að tækniþróun taki mið af lýðræðislegum gildum, mannréttindum og grundvallarreglum réttarríkisins. Sjónum verður m.a. beint að vexti samfélagsmiðla, útbreiðslu falsfrétta og hnignun hefðbundinnar fjölmiðlunar, sjálfvirknivæðingu og veitingu opinberrar rafrænnar þjónustu ásamt gagnagnótt og eftirlitsiðnaðinum.
Erlendir fyrirlesara eru: Shoshana Zuboff, prófessor í stjórnun við viðskiptadeild Harvard-háskóla, David Runciman, prófessor í stjórnmálafræði við Cambridge-háskóla, Mireille Hildebrandt, prófessor í lögfræði og tæknifræðum við Vrije Universiteit í Brussel, og Virginia Dignum, prófessor í tölvufræðum við háskólann í Umeå.
Alþjóðaráðstefna um lýðræði og stafræna tækni – Democracy in a Digital Future – verður haldin dagana 25.–26. mars 2021. Forsætisráðuneytið stendur að ráðstefnunni í samvinnu við Rannsóknasetrið EDDU við Háskóla Íslands, Alþingi og fjölmiðlanefnd.
