Loftlagsbreytingar og heilsa skv. Lancet Countdown og ósýnileg áhrif þeirra á geðheilsu

Zoom
Fyrirlesturinn er sá fjórði í röðinni Nordic Global Health Talks en upplýsingar má nálgast hér.
Fimm árum eftir loftslagsráðstefnuna í París, þegar ákveðið var að takmarka hnattræna hlýnun við „verulega minna en 2°C“, hefur hlýnunin nú þegar náð 1.2°C borið saman við stöðuna eins og hún var fyrir iðnbyltinguna. Til að vernda heilsu fólks er mikilvægt að minnka útlosun gróðurhúsategunda og halda hlýnuninni innan þeirra marks sem samkomulagið gerir ráð fyrir. Stýrihópur 2015 Lancet Countdown um loftlagsbreytingar lýsti því yfir að vinna gegn loftlagsbreytingum væri stærsta sóknarfærið fyrir hnattræna heilsu á 21. öldinni. Í fyrirlestrinum verður gefið yfirlit yfir þau heilsufræðilegu áhrif sem Lancet Countdown stýrihópurinn hefur vakið athygli á en jafnframt verður fjallað um hin s.k. ósýnilegu áhrif loftslagsbreytinga á heilsu fólks, þ.e.a.s. geðheilsu þess.
Fyrirlesturinn er sá fjórði í röðinni Nordic Global Health Talks en upplýsingar má nálgast hér.
