Líðan hinsegin ungmenna í skólum - hádegisspjall með Samtökunum '78

Hvers vegna finnur þriðjungur hinsegin ungmenna til óöryggis vegna kynhneigðar í íslenskum skólum? Hvað getum við gert til að bæta ástandið hjá þeim fjölda hinsegin nemenda sem eru áreitt vegna kynhneigðar og kyntjáningar?
Tótla I. Sæmundsdóttir, fræðslustýra Samtakanna '78, og Vallý Hirst Baldurs, forseti Q - félags hinsegin stúdenta, mæta til skrafs og ráðagerða við kennara og nemendur Menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Tótla kynnir niðurstöður könnunar Samtakanna '78 um líðan hinsegin ungmenna í skólum og Vallý ræðir um efni skýrslunnar út frá reynslu ungs hinsegin fólks af skólakerfinu. Að því loknu verður boðið upp á spurningar og spjall um hvað kennarar og starfsfólk sem menntar kennara, geta gert til að bæta ástandið. Viðburðurinn er hluti af hádegisfyrirlestraröð Jafnréttisnefndar Menntavísindasviðs.
Viðburðurinn verður á Zoom og jafnframt gerður aðgengilegur í takmarkaðan tíma fyrir þau sem ekki komast á viðburðinn sjálfan. Hlekkur á Zoom verður settur inn á Facebook-síðu viðburðar skömmu áður.
Tótla I. Sæmundsdóttir, fræðslustýra Samtakanna '78, og Vallý Hirst Baldurs, forseti Q - félags hinsegin stúdenta, mæta til skrafs og ráðagerða við kennara og nemendur Menntavísindasviðs Háskóla Íslands.
