Leyndardómar glákunnar - engu nær eða lausn í sjónmáli?
![Leyndardómar glákunnar - engu nær eða lausn í sjónmáli? - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/_kri8214_3.jpg?itok=Zifs3LPu)
Hringsalur, Landspítala
Fyrirlesari: Gauti Jóhannesson
Dósent við Læknadeild Háskóla Íslands
Dósent og yfirlæknir augndeildarinnar við Háskólasjúkrahúsið í Umeå, Svíþjóð
Gauti Jóhannesson er nýr dósent í augnsjúkdómafræðum við Læknadeild Háskóla Íslands. Gauti er yfirlæknir augndeildarinnar við Háskólasjúkrahúsið í Umeå í Svíþjóð þar sem hann starfar klínískt sem augnskurðlæknir. Gauti lauk doktorsprófi í augnlækningum 2011 við háskólann í Umeå, lauk post doc við augndeildina á Landspítala 2012-2013 og hefur verið dósent og lektor við háskólann í Umeå síðan 2017.
Rannsóknir Gauta tengjast gláku og leitast við að varpa ljósi á orsakir glákunnar, bæta meðferð og auka skilning á faraldursfræði sjúkdómsins. Gauti hefur birt >35 vísindagreinar, tekið þátt í skrifum fjögurra bóka og fengið fjölda stórra rannsóknastyrkja. Hann tekur einnig virkan þátt í félagsstörfum þar sem hann er meðal annars forseti sænsku glákusamtakanna, situr í stjórn evrópsku glákusamtakanna og leiðir ýmsar nefndir innan þeirra.
Gauti Jóhannesson er dósent við Læknadeild Háskóla Íslands og dósent og yfirlæknir augndeildarinnar við Háskólasjúkrahúsið í Umeå, Svíþjóð.
![Titill: Leyndardómar glákunnar - engu nær eða lausn í sjónmáli?](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/w9w5p.jpg?itok=ylNUQLhy)