Leiðin til lýðræðis: Opinn fundur með Svetlönu Tikhanovskaya

Veröld - Hús Vigdísar
Auðarsalur VHV 023
Svetlana Tikhanovskaya, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Belarús, bauð sig fram gegn sitjandi forseta, Alexander Lukashenko, í forsetakosningum í landinu í fyrra eftir að eiginmaður hennar var fangelsaður. Lukashenko var lýstur sigurvegari en sú niðurstaða hefur verið mjög umdeild og hefur hann verið sakaður um að hafa haft rangt við í kosningunum. Svetlana flúði land í kjölfar fjöldamótmæla í Belarús og fékk hæli í Litháen ásamt börnum sínum.
Ísland hefur um árabil tekið þátt í þvingunaraðgerðum Evrópusambandsins gagnvart Belarús vegna víðtækra og grófra mannréttindabrota þar í landi. Aðgerðirnar voru síðast hertar nú í júní í kjölfar þvingaðrar lendingar farþegaþotu Ryanair í Minsk og handtöku Raman Pratasevich og Sofiu Sapage. Sú atburðarás endurspeglar afstöðu þarlendra stjórnvalda til alþjóðlegra skuldbindinga um flugsamgöngur, mannréttindi og fjölmiðlafrelsi.
Hvert stefnir Belarús og hverjar eru framtíðarhorfur lýðræðis í landinu?
Opnunarávarp: Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra
Þátttakendur í pallborði:
- Jón Ólafsson, prófessor í menningarfræði við Háskóla Íslands
- Rósa Björk Brynjólfsdóttir, alþingismaður og fyrrv. formaður Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins
- Valur Gunnarsson, sagnfræðingur og blaðamaður
Umræðustjóri: Fanney Birna Jónsdóttir, blaðamaður
Fundurinn fer fram á ensku og er opinn öllum á meðan húsrúm leyfir
Opinn fundur með Svetlönu Tikhanovskaya föstudaginn 2. júlí kl. 15.00 - 16.00 í Auðarsal í Veröld - húsi Vigdísar
