Skip to main content

Loftslagsmál, landvistkerfi og listir

Landvistkerfi, loftslagsmál og rannsóknir - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
29. apríl 2026 12:00 til 12:50
Hvar 

Teams

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Komið er að næsta viðburði í viðburðaröðinni „Loftslagsmál og rannsóknir“ og í þetta sinn verður áhersla lögð á landvistkerfi í samhengi loftslagsmála, lista og rannsókna.

Á viðburðinum munu Ingibjörg Svala Jónsdóttir, prófessor emeríta í vistfræði, og Ásthildur Jónsdóttir, listamaður, menntunarfræðingur og sýningarstjóri, leiða saman hesta sína í erindi sem þær nefna: Loftslagsmál, landvistkerfi og listir. Eftir erindið verður opnað fyrir samtal við þátttakendur á viðburðinum.

Fundarstjóri: Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Sjálfbærnistofnunar Háskóla Íslands

Viðburðurinn fer fram á Teams kl. 12:00-12:50 miðvikudaginn 29. apríl.

Hlekkur á fjarfund:
Microsoft Teams meeting
Join https://teams.microsoft.com/meet/327645645179300...
Meeting ID: 327 645 645 179 300
Passcode: A5Pa3zn9

Nánar um fyrirlesara:
Ingibjörg Svala Jónsdóttir, prófessor emeríta við Líf- og umhverfisvísindadeild HÍ, hefur kennt vistfræði og tengdar greinar við háskóla í Svíþjóð og Noregi, Landbúnaðarháskóla Íslands og Háskóla Íslands. Auk þess leiddi hún uppbyggingu Landgræðsluskóla háskóla Sameinuðu þjóðanna, nú GRÓ-LRT. Á síðari árum hefur hún stundað rannsóknir á vistkerfum túndrunnar og hvernig þau bregðast við breytingum á loftslagi og landnýtingu.

Ásthildur Björg Jónsdóttir er listamaður, menntunarfræðingur og sýningarstjóri sem leggur áherslu á tengsl lista, menntunar og sjálfbærni. Hún lauk doktorsgráðu í menntunarfræðum frá Háskóla Íslands og í myndlist frá Lapplandsháskóla árið 2017 með áherslu á sjálfbærnimenntun. Í verkum sínum rannsakar hún hvernig listir og skapandi ferli geta eflt gagnrýna hugsun, tengsl við náttúruna og menntun til sjálfbærrar þróunar. Hún hefur einnig starfað sem sýningarstjóri, meðal annars við sýninguna Viðnám í Listasafni Íslands.

Um viðburðaröðina:
Loftslagsbreytingar eru ein stærsta áskorun samtímans og krefjast markvissra rannsókna, þverfaglegrar þekkingar og sterkari tengsla milli vísinda og samfélags. Ný viðburðaröð við Háskóla Íslands, Loftslagsmál og rannsóknir, setur fókus á stöðu loftslagsrannsókna á Íslandi, helstu þekkingargöt og þá brýnu þörf á að efla samhæfingu, miðlun og nýtingu rannsókna.

Markmið viðburðaraðarinnar er að skapa vettvang fyrir upplýsta umræðu um loftslagsrannsóknir og hlutverk þeirra í stefnumótun og ákvarðanatöku. Sérstök áhersla er lögð á samtal milli vísindafólks, sem og á milli fræðasamfélags, stjórnsýslu, atvinnulífs og almennings.

Fundurinn er hluti af viðburðaröðinni Loftslagsmál og rannsóknir sem fjallar um stöðu loftslagsrannsókna á Íslandi. Í þetta sinn verður áhersla lögð á landvistkerfi í samhengi loftslagsmála, lista og rannsókna þar sem Ingibjörg Svala Jónsdóttir, prófessor emeríta í vistfræði, og Ásthildur Jónsdóttir, listamaður, menntunarfræðingur og sýningarstjóri, leiða saman hesta sína.

Loftslagsmál, landvistkerfi og listir