Kynningarfundur um nýja jafnréttisáætlun Háskóla Íslands og ný jafnréttislög

livestream.com/hi/jafnretti
Erindi:
-Brynja Elísabeth Halldórsdóttir, formaður jafnréttisnefndar HÍ og lektor á Menntavísindasviði HÍ, fjallar um nýja jafnréttisáætlun HÍ
-Steinunn Valdís Óskarsdóttir, skrifstofustjóri, og Rán Ingvarsdóttir, lögfræðingur, á Skrifstofu jafnréttismála í Forsætisráðuneytinu, fjalla um ný lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna
Fundarstjóri er Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands.
Að erindum loknum geta áhorfendur sent inn spurningar sem frummælendur taka til umræðu.
Brynja mun fjalla um nýja jafnréttisáætlun Háskóla Íslands sem tók gildi í byrjun árs og gildir til ársloka 2023. Áætlunina má finna á jafnretti.hi.is
Rán og Steinunn Valdís segja frá nýjum lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna (nr. 150/2020) sem tóku gildi í lok síðasta árs. Lögin má nálgast á vef Alþingis.
Fundurinn fer fram á íslensku. Fylgjast má með beinu streymi á livestream.com/hi/jafnretti.