Skip to main content

Kynningardagar fyrir erlenda nýnema

Kynningardagar fyrir erlenda nýnema - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
6. janúar 2020 9:30 til 21:00
Nánar 
Aðgangur ókeypis

Kynningardagar fyrir erlenda nemendur eru haldnir í upphafi hvers misseris. Markmið daganna er að bjóða nemendur velkomna, kynna þjónustu í boði og aðstoða nemendur við að aðlagast nýju umhverfi.

Dagskráin er fjölbreytt og er m.a. boðið upp á örnámskeið í íslensku og námskeið frá Náms- og starfsráðgjöf þar sem farið er yfir leiðir til að ná árangri í náminu við Háskólann. Þá eru kynningarfundir sviða einnig hluti af dagskránni.

Nemendur fá auk þess leiðsögn um háskólasvæðið og kynningu á þjónustu Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns. 

Móttaka verður svo haldin á Háskólatorgi 6. janúar kl. 16.45 þar sem Jón Atli Benediktsson rektor og Kolfinna Tómasdóttir alþjóðafulltrúi Stúdentaráðs halda ávörp og bjóða nemendur velkomna. Boðið verður upp á tónlist og veitingar.

DAGSKRÁ 

Nánari upplýsingar

Móttaka verður haldin á Háskólatorgi þann 6. janúar þar sem Jón Atli Benediktsson rektor og Kolfinna Tómasdóttir alþjóðafulltrúi SHÍ bjóða nemendur velkomna. 

Kynningardagar fyrir erlenda nýnema