Kveikja - Þín þekking í þágu heimsins
Námskeiðið er einungis ætlað nemendum á þriðja ári í grunnnámi við Háskóla Íslands. Vinnan fer fram þvert á námsleiðir og því er mikilvægt að nemendur tilgreini á hvaða sviði og í hvaða deild þeir stunda nám.
Námskeiðið fer fram föstudaginn 17. janúar 2020 kl. 8:00-18:30.
Fjöldi þátttakenda takmarkast við 20 nemendur af hverju sviði og tekið verður mið af fjölbreytni við val á nemendum. Það skiptir því miklu að sækja um snemma.
Frekari upplýsingar má finna á www.hi.is/kveikja
Vilt þú átta þig betur á eigin styrkleikum, efla tengslanetið og um leið öðlast aukna færni í að nýta þekkingu þína og hugmyndir í þágu samfélagsins? Viltu vinna með fjölbreyttum hópi nemenda að nýjum lausnum við áskorunum samtímans, eins og loftslagsbreytingum og aukinni velsæld allra?