Skip to main content

Konur í hlutverki forseta og forsætisráðherra: Dyggðahringur kvenleiðtoga?

Konur í hlutverki forseta og forsætisráðherra: Dyggðahringur kvenleiðtoga? - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
3. júní 2021 12:00 til 13:00
Hvar 

Zoom

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála kynnir, í samstarfi við MARK – Miðstöð margbreytileika- og kynjarannsókna, opinn fyrirlestur Farida Jalalzai, prófessors í stjórnmálafræði við Virginia Tech í Bandaríkjunum. Silja Bára Ómarsdóttir prófessor í stjórnmálafræði bregst við erindinu og opnar umræður. Fundarstjóri verður Þorgerður J. Einarsdóttir, prófessor í kynjafræði. 

Í erindinu er skoðað hvort konur í hlutverki forseta og forsætisráðherra á Íslandi hafi opnað tækifæri fyrir framtíðar kvenleiðtoga og stutt við lýðræðisþróun. Konur sem þjóðarleiðtogar eru sterk pólitísk tákn og geta ögrað hugmyndum um framkvæmdavald sem karllægt svið. Þær geta þróað skilning okkar á konum í valdastöðum og aukið pólitískan áhuga og þátttöku meðal almennings. Sýnileiki kvenleiðtoga getur því átt þátt í að afbyggja þær hugmyndir að framkvæmdavald sé beintengt karllægum eiginleikum.

Farida Jalalzai er prófessor í stjórnmálafræði við Virginia Tech í Bandaríkjunum og er á Íslandi sem Fulbright styrkþegi. Sjá nánar um hana hér:

Viðburður fer fram á ensku, hlekkur á viðburð hér

 

Farida Jalalzai, prófessors í stjórnmálafræði við Virginia Tech í Bandaríkjunum

Konur í hlutverki forseta og forsætisráðherra: Dyggðahringur kvenleiðtoga?