Skip to main content

Kliður í Hátíðasal Aðalbyggingar HÍ

Kliður í Hátíðasal Aðalbyggingar HÍ - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
25. október 2023 12:15 til 13:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Fyrstu Háskólatónleikarnir þetta starfsárið eru í senn óvenjulegir og metnaðarfullir. Kórinn Kliður mun kom fram og flytja frumsömd kórverk og tónlist úr smiðju sinni. Kliður er óvenjulegur kór, skipaður listamönnum úr ýmsum áttum sem um nokkurra ára skeið hafa hist vikulega til að syngja saman. Sérstaða kórsins er að hann flytur eingöngu nýja frumsamda tónlist eftir tónskáld innan hópsins og þá gjarnan við texta eftir rithöfunda innan hans.

Tónleikarnir fara fram miðvikudaginn 25. október og hefjast leikar kl. 12.15. Staðsetning er hinn glæsilegi Hátíðasalur Háskóla Íslands og megum við vart við minna í þessu tilfelli. Tónleikunum verður einnig streymt og hægt verður að horfa á þá síðar í upptökuformi. Hvort sem þú ert í borginni, úti á landi eða úti í heimi getur þú notið hinna fögru tóna Háskólatónleikaraðarinnar og upplifað stemninguna í skólanum. Allir velkomnir á staðinn og aðgangur gjaldfrjáls.

Slóð á streymið má finna hér

Um Háskólatónleikaröðina

Háskólatónleikaröðin hóf göngu sína með nýjum áherslum haustið 2020 og hafa listamenn af alls kyns toga troðið upp. Tónleikunum hefur öllum verið streymt með glæsibrag og má nálgast upptökur hér

Umsjónarmaður tónleikaraðarinnar og listrænn stjórnandi er Dr. Arnar Eggert Thoroddsen. Segist hann styðjast við slagorðið „Háskóli fyrir alla - Tónlist fyrir alla“ og er myndast við að endurspegla það í dagskránni.

Fyrstu Háskólatónleikarnir þetta starfsárið eru í senn óvenjulegir og metnaðarfullir. Kórinn Kliður mun kom fram og flytja frumsömd kórverk og tónlist úr smiðju sinni. Tónleikarnir fara fram miðvikudaginn 25. október og hefjast leikar kl. 12.15. 

Kliður í Hátíðasal Aðalbyggingar HÍ