Skip to main content

Kínverskt viðskiptasiðferði á tímum „félagslegs lánstrausts“

Kínverskt viðskiptasiðferði á tímum „félagslegs lánstrausts“ - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
12. mars 2020 16:00 til 17:10
Hvar 

Háskólatorg

Stofa 101

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Konfúsíusarstofnun og Viðskiptafræðistofnun Háskóla Íslands standa að fyrirlestri fimmtudaginn 12.mars í Ingjaldsstofu (HT-101) kl.16:00-17:10. Fyrirlesturinn verður á ensku. Verið velkomin.

Viðskiptasiðferði í Kína hefur gjörbreyst frá konfúsískum eða búddískum hugmyndum um dyggð til víðfrægra matvæla- og öryggishneykslismála og þróunar þjóðerniskennds frumkvöðlastarfs sl. áratug. Fjallað verður um breytingarnar frá „samfélagslegri ábyrgð“ yfir í „félagslegt lánstraust“ og aukna samleið kínverskra tæknifyrirtækja og ríkisins með stafrænni þróun samfélagsins. 

Constantin Holzer lauk doktorsprófi í hagfræði frá Renmin háskóla í Kína og gegnir stöðu lektors í kínverskum viðskiptum við University College Cork.

Constantin Holzer.

Kínverskt viðskiptasiðferði á tímum „félagslegs lánstrausts“