Jólatónleikar Kvennakórs Háskóla Íslands

Hvenær
30. nóvember 2025 14:00 til 15:00
Hvar
Hörpu
Nánar
Aðgangur ókeypis
Kvennakór Háskóla Íslands býður til jólatónleika í Hörpuhorni þann 30. nóvember. Sungin verða jólalög úr ýmsum áttum en þó má inni á milli greina þjóðlög af ýmsum toga. Sungið er á íslensku og ensku í þetta skiptið, en kórinn hefur þá sérstöðu að hann skipa kórsöngvarar frá ýmsum menningarheimum.
Stjórnandi kórsins er Lilja Margrét Riedel.
Tónleikarnir taka um það bil 40 mínútur.
Enginn aðgangseyrir og allir hjartanlega velkomnir!
Kvennakór Háskóla Íslands býður til jólatónleika í Hörpuhorni þann 30. nóvember.
