Jafnrétti til náms? Upplifun nemenda með sértæka námsörðugleika

Hvenær
3. október 2018 16:00 til 17:30
Hvar
Litla Torg, Háskólatorg
Nánar
Aðgangur ókeypis
Hvernig kemur Háskóli Íslands til móts við nemendur með sértæka námsörðugleika? Í tengslum við jafnréttisdaga Háskóla Íslands 1. til 5. október standa Jafnréttisnefnd Stúdentaráðs HÍ og Hugrún - geðfræðslufélag fyrir viðburði þar sem við ætlum að leita svara við þessari spurningu.
Frummælandi á fundinum verður Sigríður Jónsdóttir, en síðastliðið vor vann hún verkefni um sértæka þjónustu Náms- og starfsráðgjafar HÍ.
Einnig munu nokkrir nemendur segja frá sinni upplifun af þjónustu Háskólans.
Jafnrétti til náms? Upplifun nemenda með sértæka námsörðugleika
