Íslensk-þýsk samskipti á tímum Þriðja ríkisins

Lögberg
Stofa L101
Florian Jacob, þýskur doktorsnemi í sagnfræði, flytur erindi á vegum Lagastofnunar. Jacob er menntaður menntaskólakennari og sagnfræðingur og stundar nú doktorsnám við Humboldt-háskóla í Berlín. Doktorsverkefnið fjallar um íslensk-þýsk samskipti á tímum Þriðja ríkisins með aðaláherslu á samskipti ríkjanna á sviðum menningar- og utanríkismála. Í rannsóknum sínum hefur Florian fengist við nokkur álitaefni tengd lögum og rétti og í erindi sínu mun hann rekja nokkur þeirra. Þau varða annars vegar árás á ræðismann Þjóðverja sem leiddi til brottvísunar þýsks námsmanns frá Íslandi og hins vegar þýska sjómenn sem lögðu á flótta eftir að síðari heimsstyrjöldin braust út. Mun Florian segja frá málunum og bera saman fréttaflutning þess tíma við gögn úr Þjóðskjalasafni Íslands sem ekki hefur verið fjallað um áður. Fyrirlesturinn verður á íslensku.
Florian Jacob, doktorsnemi í sagnfræði við Humboldt-háskóla í Berlín, flytur erindi. Í rannsóknum sínum hefur Florian fengist við nokkur álitaefni tengd lögum og rétti og í erindi sínu mun hann rekja nokkur þeirra. Þau varða annars vegar þýska sjómenn sem lögðu á flótta eftir að síðari heimsstyrjöldin braust út og hins vegar árás á ræðismann Þjóðverja sem leiddi til brottvísunar
þýsks námsmanns frá Íslandi. Fyrirlesturinn verður á íslensku. Fundarstjóri verður Hafsteinn Þór Hauksson dósent.
