Skip to main content

Inntökuprufur Háskólakórsins

Inntökuprufur Háskólakórsins - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
13. janúar 2026 16:30 til 14. janúar 2026 18:00
Hvar 

Aðalbygging

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Viltu kynnast nýju fólki og syngja saman? Háskólakórinn leitar að nýjum meðlimum til að syngja frábær lög í utanlandsferð í sumar.

Allar raddir eru velkomnar að kíkja til okkar í inntökuprufur sem fram fara þriðjudaginn 13. janúar og miðvikudaginn 14. janúar kl. 16.30 í Aðalbyggingu HÍ. Endilega hafðu samband við kor@hi.is ef þú sérð fram á að mæta seinna en 18.00 svo við vitum af þér!

Um kórinn:

Háskólakórinn er ómissandi partur af háskólalífinu og telur meðlimi frá öllum háskólum höfuðborgarsvæðisins. Starfsemi kórsins er viðamikil en ásamt því að koma fram á fjölmörgum viðburðum, innan Háskóla Íslands sem utan, heldur kórinn annartónleika, fer í æfingabúðir og tónleikaferðalög, heldur árshátíð og mörg teiti og skemmtanir.

Kórinn er fullur af skemmtilegu fólki og við hvetjum öll sem hafa gaman af því að syngja og skemmta sér að koma í prufurnar. Æfingar eru tvisvar í viku á þriðjudögum og fimmtudögum frá 17:15 til 19:30.

Fyrirkomulag inntökuprufanna:

Umsækjendur fara einn í einu inn í salinn þar sem kórstjóri og fulltrúar kórstjórnar taka á móti þeim. Óþarfi er að mæta með tilbúið lag þar sem aðeins er verið að prófa raddsvið og getu. Kórstjórinn mun fara með þér yfir nokkra skala og mun líklega biðja þig um að syngja Maístjörnuna.

Frekari upplýsingar ásamt fyrirspurnum er hægt að nálgast gegnum:

Netfang: kor@hi.is

Facebook

Instagram

Vefsíðu Háskólakórsins

Myndband um Háskólakórinn

Við hlökkum til að sjá ykkur! ️