Í kjölfar COP26

Háskólatorg
Litlatorg og streymi
Opinn fundur á vegum framhaldsnáms í Umhverfis- og auðlindafræði og Stofnunar Sæmundar fróða við Háskóla Íslands og Félags stjórnmálafræðinga.
Skráning er nauðsynleg vegna samkomutakmarkana og fundinum verður streymt.
Streymi https://livestream.com/hi/kjolfarcop21
Loftslagsráðstefnan í Glasgow fór fram í byrjun nóvember 2021 þar sem ná átti pólitískri samstöðu um að efla aðgerðir í baráttunni við loftlagsbreytingar. Á fundinum verður farið yfir hvað gerðist í Glasgow, hvaða þýðingu það hefur fyrir Ísland og hverjar framtíðarhorfur Parísarsamkomulagsins eru. Fjallað verður um brýnustu verkefnin framundan, bæði frá sjónarhóli Íslands og alþjóðasamfélagsins, til þess að halda hækkun hitastigs á jörðinni undir 1.5°C.
Þátttakendur:
- Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra
- Halldór Þorgeirsson, formaður Loftlagsráðs
- Tinna Hallgrímsdóttir, formaður Ungra umhverfissinna
- Kristján Guy Burgess, alþjóðastjórnmálafræðingur
Fundarstjóri: Bjargey Anna Guðbrandsdóttir, verkefnastjóri umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands
Fundinum verður streymt (slóð birt síðar) og áhorfendur geta sent inn spurningar í gegnum sli.do #loftslagid
26. loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna, COP26, fór fram í Glasgow 1. - 13. nóvember.
