Hvernig gerum við Norðurlöndin grænni og vænni? - Loftslagsumræður á netinu

Kórónuveiran hefur frestað alþjóðlegum viðræðum um loftslagsmál en vinnan heldur áfram. Norræna ráðherranefndin efnir til umræðna á netinu undir yfirskriftinni „Að velja græna leið/Choosing Green” þriðjudaginn 17. nóvember. Hæfileikaríkt fólk hefur verið kallað að borðinu til að veita innblástur og innsýn, þ.á.m. ungir aðgerðasinnar, stjórnmálafólk, fræðimenn frumkvöðlar og fólk í forsvari fyrir félagasamtök og fyrirtæki.
Í umræðunum verður fjallað um mismunandi sjónarhorn á hlutverk Norðurlandanna í grænu bataferli í kjölfar kórónuveirufaraldursins. Hvað höfum við að bjóða og hverjir eru veikleikar okkar? Hvernig náum við fram réttlátum grænum umskiptum á tímum samdráttar? Er norræna velferðarlíkanið í stakk búið til þess að takast á við þessa nýju framtíð án þess að einhver verði útundan? Hver verða áhrif grænna umskipta á menntakerfið? Eru norrænu ríkin búin undir græna framtíð með breyttum vinnumarkaði sem krefst nýrrar hæfni?
Dagskránni er skipt í þrjú þemu sem snúa að loftslagsaðgerðum, atvinnulífinu og velferð fólks:
Kl. 9-11: Græn Norðurlönd - hversu langt höfum við náð?
- Brynhildur Davíðsdóttir, prófessor í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands
- Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs
- Tinna Hallgrímsdóttir, varaformaður Ungra umhverfissinna og ungmennafulltrúi Íslands hjá SÞ á sviði sjálfbærrar þróunar og meistaranemi í umhverfis- og auðlindafræði
Kl. 12-14: Græn umskipti – afleiðingar fyrir störf og hæfni á Norðurlöndum
- Hrund Gunnsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Festu, miðstöðvar um samfélagsábyrgð
- Sigurður Loftur Thorlacius, fulltrúi ungmenna í Loftslagsráði
- Davíð Þorláksson, forstöðumaður samkeppnishæfnisviðs SA
- Una Hildardóttir, formaður Landssambands ungmennafélaga
Kl. 15-17: Hugrakkur sjálfbær heimur – norræna líkanið undir þrýstingi?
- Aðalbjörg Egilsdóttir, ungmennafulltrúi Íslands hjá SÞ á vegum loftslagsmála og meistaranemi í umhverfis- og auðlindafræði
- Urður Einarsdóttir, formaður umhverfis- og samgöngunefndar SHÍ
Viðburðurinn er á ensku og honum verður streymt á Facebook-síðu Norræna hússins og á norden.org.
Sjá dagskrána í heild sinni og lista yfir þátttakendur á vefsíðunni www.norden.org/en/choosing-green
Viðburðurinn er haldinn í ljósi þess að loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP26, var frestað fram á næsta ár vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Norrænt samstarf leggur kapp
á að fresta ekki brýnum verkefnum í átt að grænni og sjálfbærari framtíð fyrir alla.
Norræna ráðherranefndin efnir til umræðna á netinu undir yfirskriftinni „Að velja græna leið/Choosing Green” þriðjudaginn 17. nóvember. Hæfileikaríkt fólk hefur verið kallað að borðinu til að veita innblástur og innsýn, þ.á.m. ungir aðgerðasinnar, stjórnmálafólk, fræðimenn frumkvöðlar og fólk í forsvari fyrir félagasamtök og fyrirtæki.
