Hvatningarverðlaun jafnréttismála 2020

Hvatningarverðlaun jafnréttismála verða afhent miðvikudaginn 18. nóvember á rafrænum morgunfundi um jafnréttismál frá 9.00-10.00.
Bein útsending frá viðburðinum
Að verðlaununum standa atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, landsnefnd UN Women á Íslandi, Samtök atvinnulífsins, Festa – miðstöð um samfélagsábyrgð og Háskóli Íslands.
Dagskrá
Opnunarávarp: Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands
Erindi:
-Úlf Viðar Níelsson, prófessor við Háskóla Íslands, fjallar um #MeToo og virði fyrirtækja
-Hjördís Lilja Örnólfsdóttir hagfræðinemi og Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, verkefnastjóri hjá Samtökum atvinnulífsins, fjalla um kynjahlutföll og stjórnendur í íslensku atvinnulífi.
-Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, handhafi Hvatningarverðlauna jafnréttismála 2019.
Afhending:
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, iðnaðar- og nýsköpunar, afhendir Hvatningarverðlaun jafnréttismála 2020
Fundarstjóri: Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
Hvatningarverðlaun jafnréttismála verða afhent miðvikudaginn 18. nóvember á rafrænum morgunfundi um jafnréttismál frá 9.00-10.00. Landsvirkjun hlaut viðurkenninguna árið 2019
