Skip to main content

Hvað kemur út úr kófinu? Nýbreytni og hagnýt amboð í fjarkennslu meistaranema. 

Hvað kemur út úr kófinu? Nýbreytni og hagnýt amboð í fjarkennslu meistaranema.  - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
18. nóvember 2020 15:00 til 16:00
Hvar 
Nánar 
Aðgangur ókeypis

Fastanefnd um meistaranám stendur fyrir fræðslu- og umræðufundi á netinu. Hér er slóð á Zoom-fundinn.

Kennslan undanfarið hefur verið krefjandi og fundurinn býður upp á möguleg svör við áskorunum kennara og nemenda.

Fjallað verður um reynslu meistaranema af fjarnámi og kennslu og um leiðir til að gera fjarnám áhugavert og lifandi. 

  1. Meistaranemarnir Sóley Arna Friðriksdóttir og Kolbrún Lára Kjartansdóttir segja frá upplifun sinni af fjarnámi á síðustu mánuðum
  2. Hróbjartur Árnason og Bettý Kristjánsdóttir kynna amboð  (Mural og Mindmeister) sem stuðla að samvinnu og kynna hópvinnuaðferðir til að virkja nemendur.

Allir áhugasamir velkomnir.