Hugvísindaþing - frestað

(Frestað til hausts) Hugvísindaþing við Háskóla Íslands verður haldið 13. og 14. mars. Þingið verður sett í Aðalbyggingu og þá heldur Carolyne Larrington hátíðarfyrirlestur um Krúnuleikana. Í kjölfarið verður boðið upp á yfir 150 fyrirlestra í 39 málstofum sem dreifast á báða dagana og fara fram í Árnagarði, Odda og Lögbergi. Til umfjöllunar verða saga, sögur, myndmiðlun og sviðslistir, tungumál og málfræði frá fjölmörgum sjónarhornum, heimspeki og trú, flóttamenn, lýðræði, mannréttindi og valdakerfi, kennsluhættir, umhverfismál ...
Þingið er opið öllum og aðgangur ókeypis.
Verið velkomin á Hugvísindaþing!
Carolyne Larrington, prófessor við Oxford-háskóla og sérfræðingur í norrænum og evrópskum miðaldabókmenntum sem og nútíma aðlögunum á miðaldaefni.
