Höfundur og ritstjóri: Harpa Rún og Páll Valsson

Veröld - Hús Vigdísar
008
Samstarf ritstjóra og rithöfundar fer yfirleitt ekki hátt en getur þó skipt sköpun fyrir útkomuna. Stundum er starfi ritstjórans líkt við ljósmóðurstarf. Ritlist við Háskóla Íslands í samstarfi við Bókmennta- og listfræðastofnun efnir á þessu haustmisseri til þriggja viðburða þar sem höfundur og ritstjóri ræða þetta samstarf.
Þriðjudaginn 9. nóvember munu rithöfundurinn Harpa Rún Kristjánsdóttir og ritstjórinn Páll Valsson spjalla um samstarf sitt við bókina Kynslóð sem er nýkomin út hjá Bjarti.
Páll er einn reyndasti ritstjóri landsins og hefur unnið með mörgum af þekktustu höfundum þjóðarinnar. Harpa Rún, sem hreppti Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir ljóðabókina Eddu árið 2019, sendir nú frá sér sína fyrstu skáldsögu. Harpa er bókmenntafræðingur að mennt en starfar nú sem rithöfundur og bóndi.
Spjallið fer fram í stofu 008 í Veröld kl. 12–13 þriðjudaginn 9. nóvember. Viðburðurinn er opinn öllum og er aðgangur ókeypis.
Harpa Rún Kristjánsdóttir rithöfundur og Páll Valsson ritstjóri.
