Skip to main content

Heilsan okkar: Líðan barna og unglinga á Íslandi

Heilsan okkar: Líðan barna og unglinga á Íslandi - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
28. mars 2025 11:30 til 13:00
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Salur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Heilsan okkar - fundaröð: Líðan barna og unglinga á Íslandi

Líðan barna og unglinga hefur verið mikið í umræðunni undanfarið og því hefur oft verið haldið fram að geðheilsu íslenskra ungmenna fari hrakandi. Fjallað verður um nýjustu kannanir á líðan íslenskra unglinga, skipulag og nýtingu geðheilbrigðisþjónustu á Íslandi síðustu misseri, lyfjanotkun og sjálfsvíg, auk þess sem farið verður yfir raunprófaðar forvarnir og foreldrum gefin hagnýt ráð.

Hlekkur á streymi: https://vimeo.com/event/5019651

Dagskrá

Þórhildur Halldórsdóttir, dósent, Sálfræðideild HR: Andleg heilsa ungmenna fyrir og eftir heimsfaraldur.

Guðrún Bryndís Guðmundsdóttir, yfirlæknir, Geðheilsumiðstöð barna - Geðheilbrigðisþjónusta fyrir börn og unglinga á Íslandi í dag, áskoranir og framtíðarsýn.

Bertrand Andre Marc Lauth, dósent, Læknadeild HÍ - Geðlyfjanotkun, sjálfsvígshegðun, skólaforðun og aðrir geðheilbrigðisvísar hjá börnum og unglingum.

Urður Njarðvík, prófessor, Sálfræðideild HÍ - Geðheilsa barna og unglinga: Árangursríkar forvarnir og hagnýt ráð fyrir foreldra.

Fundarstjóri er Unnur Sigurveig Þórhallsdóttir, lögfræðingur hjá umboðsmanni barna.

Um Heilsuna okkar
Funda- og viðburðaröðin Heilsan okkar er hugsuð sem samtal almennings, fagfólks og fræðafólks um heilsutengd málefni og verða viðburðir öllum opnir og þeim verður einnig streymt beint á netinu. Hlekkur á streymi kemur hér inn á viðburðinn og á viðburðasíðu á hi.is.

Heilsan okkar er ný fundaröð Háskóla Íslands og Landspítala sem hefur það að markmiði að varpa ljósi á áríðandi mál líðandi stundar er varða heilsu og heilbrigðisþjónustu. Þessir mánaðarlegu upplýsingafundir eru öllum opnir og eru almennt á dagskrá í hádeginu síðasta föstudag hvers mánaðar.

Heilsan okkar: Líðan barna og unglinga á Íslandi