Skip to main content

Heilbrigðiskerfið og áhyggjur á tímum kóvíd

Heilbrigðiskerfið og áhyggjur á tímum kóvíd - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
10. desember 2020 16:00 til 17:00
Hvar 

Zoom

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála og Félag stjórnmálafræðinga munu standa fyrir viðburði um heilbrigðiskerfið og áhyggjur á tímum kóvid þann 10.desember næstkomandi kl.16:00-17:00. Þar munu Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði, og Sigrún Ólafsdóttir, prófessor í félagsfræði, báðar við Háskóla Íslands, fjalla um viðbrögð stjórnvalda og almennings við faraldrinum.

Sigurbjörg mun kynna niðurstöður úr sam-evrópskri rannsókn á viðbrögðum stjórnvalda við kóvid-19 undir yfirskriftinni „Norrænt líkan?: Samanburður á viðbrögðum stjórnvalda á Norðurlöndum við COVID-19 heimsfaraldrinum“ og í erindi Sigrúnar Ólafsdóttur, „Erum við öll í þessu saman? Áhyggjur almennings af kóvid-19 faraldrinum“, mun hún kynna niðurstöður úr ný-afstaðinni spurningakönnun á Íslandi og fjalla um þær út frá sjónarhorni félagsfræðinnar.

Viktor Orri Valgarðsson, nýdoktor við Háskólann í Southampton, mun stýra umræðunum.

Viðburðinum verður streymt hér

Heilbrigðiskerfið og áhyggjur á tímum kóvíd - Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála og Félags stjórnmálafræðinga.

Heilbrigðiskerfið og áhyggjur á tímum kóvíd