Hátíðarsamkoma í tilefni 110 ára afmælis Háskóla Íslands

Aðalbygging
Viðburðurinn er lokaður en verður sendur út í streymi.
Háskóli Íslands efnir til hátíðarsamkomu í Hátíðasal Aðalbyggingar fimmtudaginn 17. júní kl. 9 en þann dag verða 110 ár liðin frá stofnun skólans. Vegna samkomutakmarka er viðburðurinn lokaður en hann verður í beinni útsendingu.
Á hátíðarsamkomunni verður undirrituð viljayfirlýsing milli Háskóla Íslands og ríkisstjórnar Íslands um að setja á fót sýningu helgaða forsetatíð og störfum Vigdísar Finnbogadóttur í Loftskeytastöðinni á Melunum. Á athöfninni mun Vigdís jafnframt afhenda Háskóla Íslands muni frá forsetatíð sinni sem verða m.a. grundvöllur sýningarinnar.
Ávörp á hátíðarsamkomunni flytja Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, Isabel Alejandra Díaz, forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands, auk Vigdísar Finnbogadóttur. Enn fremur flytur Háskólakórinn undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar nokkur lög.
Háskóli Íslands efnir til hátíðarsamkomu í Hátíðasal Aðalbyggingar fimmtudaginn 17. júní kl. 9 en þann dag verða 110 ár liðin frá stofnun skólans.
